Amerískar pönnukökur

Amerískar pönnukökur

2 egg

2-3 dl súrmjólk (möndlumjólk virkar líka)

40 g smjör

250 g hveiti

2 msk sykur

2 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

Blandið saman eggjum, 2 dl af súrmjólk og öllum hinum innihaldsefnunum. Þynnið deigið út með mjólk eftir þörfum.og Setjið vel af smjöri á pönnu. Takið meðalstóra ausu og hellið deigi sem er u.þ.b 10-15 cm í þvermál.

Þegar það er búið að bakast aðeins og má sjá að kantarnir eru orðnir eldaðir og loftbólur fara að myndast á yfirborði pönnukökunnar er kominn tími til að snúa henni við. Bætið örlitlu smjöri á í hvert skipti sem þið setjið nýja pönnuköku á pönnuna.

Berið fram með Jack Daniels hlynsírópi (eða bara venjulegu hlynsírópi)

Jack Daniels hlynsíróp er gert svona:

1/3 flaska af hlynsírópi er sett í pott og smá skvetta (td. 1-2 msk af JD er hitað saman í potti þar til að sírópið er farið að sjóða og þykkna aðeins. Best að bera það fram heitt með pönnukökunum.