BBQ kjúklingavængir

BBQ kjúklingavængir
(1)

1 bakki kjúklingavængir (8-10 stk)

1 tsk laukduft

1 tsk hvítlauksduft

1 msk paprika

salt og pipar

1-2 msk púðursykur

100 g BBQ sósa

1 tsk olía

Byrjið á að blanda saman laukdufti, hvítlauksdufti, papriku, salti og pipar.

Kjúfið kjúklingavængina í þrennt og hendið vængendanum. Kryddið kjúklingavængina með helming kryddblöndunnar en geymið hinn helming kryddblöndunnar þar til í lokin.

Forhitið air fryer í 200°c og steikið kjúklingavængina í 10 mínútur. Snúið vængjunum og steikið áfram í aðrar 10 mínútur.

Setjið eina matskeið af púðursykri saman við kryddblönduna sem var afgangs.

Setjið steikta vængina í hreina skál ásamt kryddblöndunni og hrærið vel í með sleikju. Setjið BBQ sósu út í skálina eftir smekk og hrærið í áður en borið er fram.