Allrahanda einfaldasta deigið
Þessi einfalda uppskrift er svo þægileg þar sem ekki þarf að láta hana hefast og er því bara að láta ofnin hitna og baka svo í 20 mín. ég geri oft beyglur úr uppskriftinni, brauðbollur, naan brauð eða pizzabotna fyrir fjölskylduna.
160 g hveiti
240 g grisk fitulaus jógúrt
2 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
Blandið þurrefnum saman og hrærið jógúrtinni saman við. Bætið við örlitlu af hveiti ef þarf þegar deigið er hnoðað.
Bakið við 200°c í 20 mínútur eða þar til brauðbollurnar eða beyglurnar hafa tekið góðan lit.
Svo hefur einnig verið gerð tilraun með að tvöfalda deigið og smyrja bræddu smjöri og kanilsykri yfir. Úr þessu voru gerðir 12 snúðar sem voru bakaðir í formi og smávegis glassúr settur yfir að bakstri loknum: