Kryddhorn
2 1/2 dl mjólk
2 tsk þurrger
450-500 g hveiti
2 tsk salt
1 tsk timjan
1 tsk oregano
1/2 dl matarolía
1 eggjarauða
Fylling:
1 dós smurostur (300 g)
1 pk skinka
Leysa gerið upp í volgri mjólk. Mest allt hveitið, timjan, oregano, olía, eggjarauða og salt sett útí, Látið hefast í klst. Skipta deiginun í 8 hluta og fletja út í 10", skera í 8 búta eins og pizzasneiðar. Skinka og ostur hrært saman og sett í breiðara hluta hverrar sneiðar. Rúllað upp í horn. Látin hefast í 30 mín. Penslað með eggjahvítu. Bakað við 200°c í 15-20 mín